FNÍS

Félag nema í sjúkraþjálfun

«Nóvember 2009»
sunmánþrimiðfimföslau
06:08:42
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930

Valmynd

Atburðir

Enginn atburður skráður

Afmælisbörnin

  • Ekkert afmælisbarn í dag.

Innskráðir

Enginn innskráður...

Vísindafólk

Topp 50

FNÍS þakkar...

Serrano Altis Rizzo The Celtic Cross

Heilbrigðisleikar!!

27. október 2009 kl. 17:12

Þá er komið að því!!!
Eins og flestir muna þá heppnuðust Heilbrigðisleikarnir gífurlega vel í fyrra og höfum við, deildirnar við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, ákveðið að halda þessari góðu hefð gangandi!!
Það sem ÞÚ þarft að vita er að föstudagurinn 6. nóvember 2009 á Rúbín í Öskjuhlíð er the place to be!!

Eins og í fyrra munu herlegheitin byrja á sérstökum HeilbrigðisLEIKUM þar sem deildir munu keppa sín á milli í ýmsum þrautum og keppnum. Hver deild sendir frá sér stolt sitt sem þarf að innihalda 6 manns; þrjú tveggja manna pör. Að sjálfsögðu fá þessir ofurhugar svo frítt á ballið og veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurliðið!!

Húsið opnar kl 19:30 og leikarnir hefjast kl: 20:00.
Ballið sjálft hefst svo með dúndrandi Glimmer tónlist í boði DJ Glimmer tvíeykisins @ 22:00 og mun partýið standa til 01:00!!

Fyrir verðandi sálfræðinga, lækna, hjúkrunarfræðinga, tannlækna, lyfjafræðinga, sjúkraþjálfara, lífeinda- og geislafræðinga og næringar- og matvælafræðinga kostar litlar 1000 krónur inn í forsölu.
Fyrir aðra góðvini þessa ágæta fólks kostar örlitlar 1500 krónur í forsölu.
Auk þess verður selt inn í dyrunum og mun þá miðinn kosta pínkulitlar 2000 krónur fyrir alla.

Það er augljóst mál að enginn ætlar að missa af þessari gleði!!

Miðasala fer fram í gegnum heimabanka og þið eruð vinsamlegast beðin um að leggja rétta upphæð inná reikningsnúmerið 0101-15-382078 og kennitölu 151088-2449.
GLEYMIÐ EKKI að setja nafn ykkar og nafn deildar ykkar inní skýringar, og málið er dautt.

Hlökkum til að sjá ykkur Glimmrandi hress föstudaginn 6 nóvember á Rúbín!! 
 

Styrktarleikur stúdenta

26. október 2009 kl. 19:06

Laugardaginn n.k. kl 17:00 munu úrvalslið Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík í knattspyrnu etja kappi í Kórnum í Kópavogi. Hvor skólinn mun tefla fram 16 stjörnum úr íslenskri knattspyrnu og allt til styrktar góðu málefni. Fyrirliðarnir eru þeir Auðunn Helgasog (HR) og Gunnar Már Guðmundsson (HÍ). Kristinn Jakobsson mun dæma leikinn.

Miðaverð er 1000 kr. og mun allur ágóðinn renna óskiptur til Krafts, stuðningsfélags ungs fólk sem hefur greinst með krabbamein. Miðasala er hafin á midi.is en einnig verður selt við inngang.

Við hvetjum alla til þess að mæta og horfa á vonandi hörkuleik! 

Kv. Stjórnin

Þjálfi

20. október 2009 kl. 18:49

Hæ hæ.....

Eins og þið vitið vonandi öll þá er Þjálfi (litla árshátiðin okkar) á föstudaginn!! Verðið er 2000 kr og mikilvægt er að borga sem fyrst, helst í síðasta lagi á miðvikudaginn 21.10. Þið verði  að borga nemendafélagsgjöldin til að geta tekið þátt í þessu og því sem félagið stendur fyrir framvegis.

Þemað á Þjálfa er hermanna! :) skylda að mæti í einhverju hermanna síðan er bara að koma með góða skapið!

FNÍS: 2500 kr

Þjálfi: 2000 kr

 Rkn. 137-26-4410
 kt. 441094-2059

                                                      

Þjálfi

20. október 2009 kl. 18:49

Hæ hæ.....

Eins og þið vitið vonandi öll þá er Þjálfi (litla árshátiðin okkar) á föstudaginn!! Verðið er 2000 kr og mikilvægt er að borga sem fyrst, helst í síðasta lagi á miðvikudaginn 21.10. Þið verði  að borga nemendafélagsgjöldin til að geta tekið þátt í þessu og því sem félagið stendur fyrir framvegis.

Þemað á Þjálfa er hermanna! :) skylda að mæti í einhverju hermanna síðan er bara að koma með góða skapið!

FNÍS: 2500 kr

Þjálfi: 2000 kr

 Rkn. 137-26-4410
 kt. 441094-2059

                                                       kv

Oktoberfest

8. október 2009 kl. 00:21

Sæl öll

Föstudaginn 9. október ætlum við að hittast á kaffi zimsen og hita upp fyrir oktoberfest. Það verður kútur í boði og svo bjór á 350 kall eftir það, við tökum svo röltið niður í tjald saman. Þetta byrjar á milli 18 og 19.

Sjáumst. Stjórnin

Firmakeppni Gróttu

6. október 2009 kl. 09:41

Sæl

Laugardaginn 10. október frá kl 14:00 - 17:00 verður firmakeppni Gróttu haldin á Gróttuvelli. 6 manna lið - 4 varamenn leyfðir. Veglegir vinningar í boði. Þáttökgjald 10.000 kr á lið.

Um kvöldið verður svo skemmtihóf fálkanna og verðlaunaafhending mótsins. Hófið verður haldið í félagsheimili Gróttu við Gróttuvöll og byrja herlegheitin 21:00 og stendur til 00:00. DJ Stjáni Finnboga þeytir 80 snúningum.

Leikmenn Gróttu sjá um veitingar á spottprís

Ræðumaður kvöldsins er Ásmundur Guðni Haraldsson

Rúsinan er svo happadrætti meistaraflokks

Aðalvinningur: miðar fyrir 2 til Evrópu með Icelandair

Skráning er hjá asveins@hotmail.com

 

Koma svo, setjum í eitt sjúkraþjálfara lið og vinnum þetta mót

 

Kv. Garðar

Vísó í laugar

2. október 2009 kl. 16:05

Vísindaferðin í laugar byrjar 18:00 en ekki 17:00. Reynið að láta það berast.

 

Kv. Stjórnin

Vísindaferð í Kraft 25.sept!!!

22. september 2009 kl. 17:32

Jæja góðir samnemendur, 

Við vonum að þið séuð búin að jafna ykkur eftir vísindaferð í Nova því það er komið að annarri vísindaferð ársins! Í þetta skiptið ætlar Kraftur, Félag ungs fólks með krabbamein, að bjóða okkur í heimsókn til sín föstudaginn 25.september á slaginu 18:00. Þau sem ekki vita er þetta staðsett í Skógarhlíð 8 eða í húsi Krabbameinsfélagsins. Í þetta skiptið komast 25 manns að. Skráning hefst á morgun á slaginu 13:01!

Eftir vísó verður skrallað í bænum, planið er að það verður búið að redda góðum díl á einhverjum bar fyrir okkur þannig að allir ættu að geta dottið í það án þess að eyða öllum vasapeningnum sínum ;) Verður látið vita seinna í vikunni hvaða staður verður fyrir valinu.

Kveðja,

Stjórnin

 

Vísindaferð í NOVA

18. september 2009 kl. 11:25

Fyrsta vísindaferð skólaársins er í kvöld! síðast þegar fórum í NOVA var svakalegt fjör og verður öruggleg jafn skemmtilegt ef ekki skemmtilegra í kvöld :) mæting kl 18 í NOVA í Lágmúla !! með góða skapið

                                                                                                                                         sjáumst hress kv Stjórnin

Fótboltamót - úrslit

14. september 2009 kl. 09:37

Sæl öll

Eftir æsispennandi keppni þar sem eldri árin sýndu yngri árunum
hvernig á að fara að þessu... (eða var það kannski öfugt???)
stóð lið busanna, Valla - Sport, uppi sem sigurvegari eftir hörku
leik við 2. árið. Þó má ekki gleyma glæstri frammistöðu 3.
og 4. árs sem vegna manneklu slógu saman í eitt lið.

1. árið sló öll met í mætingu eins og þau höfðu lofað og
náðu í 2 lið auk endalausra skiptimanna.

2. árið náði akkúrat í 5 manna lið með lánsmanni

3. árið fær skammarverðlaun þetta árið með aðeins 1
leikmann

4. árið mætti með "öflugt" 4 manna lið sem fékk 3. árs
manninn lánaðan.

Ekki verður farið í úrslit leikja eða markatölur að þessu
sinni.

Við þökkum kærlega fyrir vel heppnað, blautt og skemmtilegt
fótboltamót og hlökkum til á næsta íþróttamóti :)

                                                                                           kv. Stjórnin

 

 

 

Eldri »